8.11.02

Helgarfrí framundan
jájá, vissi nú ekkert hvert titill þessarar pistils ætti að vera... en já... það var þárna einhver sýra sem ég ætlaði að segja frá... Já. Í gær var sumsé Mr. Deeds í bíó hér og þetta var þessi líka fínasta mynd! mæli með henni. æi jájá, ég bara hreinlega man ekkert sérstaklega skemmtilegt í augnabilikunu sem er frásögufærandi held ég. Það er bara helgarfrí framundan og bara einn tími eftir hér hjá okkur.... er ekki í stuði til að rugla núna svo að þetta verður að nægja í bili!

6.11.02

Rottuheimur hjá Bergi!
Já, Bergur hefur sett af stað tilraunastofu hér á netinu sem hann kallar Rottuland. Þetta er blogspot síða og er slóðin: rottuheimur.blogspot.com/. Skoðið þetta endilega, hann aðvísu bara að byrja með þetta en jæja já, fínt fínt. Mögulega verða sett hér bráðum inn viðtöl sem við gerðum hvor við annann í íslensku um daginn. Ég tók viðtal við Björninn, hann við mig, Bergur (Skúli) við Depil og Depill við Berg og svo Svenni við Berg. Tjah... ég og Björn fengum nú hæstu einkunnirnar eða 8 og 9 en Bergur og Depill voru í kringum 5! Enda viðtöl þeirra tóm sýra og því viðeigandi að setja það hér inn ;) hugsamlega verður búin til blogspot síða með okkur fjórum félögum, skoða það.... Við erum sko proffarnir í bekknum, með í kringum 100% mætingu! Reyndar hefur Depill skrópað í einn stuðning og svo er Bergur með eina fjarvist í íslensku en samt hefur hann aldrei skrópað!! Uss usss.... jæja já bezt að fara að gera eitthvað annað.... gáfulegraaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa. Bæbæ

5.11.02

Snilld í stærðfræðitíma ofl...
Ok hæ! í dag í stærðfræðitíma varð allt vitlaust.... eða þannig... Lítið var gert af því að læra amk! Tíminn var í Álfasteini og hafa Bergur og Björn lengi talað um að það væri nú handhægt að fara bara í sturtu þárna í miðjum tíma... núú, þegar við vorum að fara mundum við eftir þessu og þeir taka með sér handklæði. Þegar tíminn var nú liðlega hálfnaður og lítið var nú komið niður á blöðin, enda stærðfræði svo asnaleg og tilgangslaus að það skilur ekki nokkur maður (meiraðsegja stærfræðikennarinn mátti kíkja í svarið til að skilja eitt dæmið sem ég átti í bazli við!!) En já, tíminn hálfnaður já og hafði lítið gerzt annað enn fólk að segja brandara og tala saman bara, biðja þá Bergur og Björn um leyfi til að fara á klósettið, jújú, það er í orden; fara með handklæðin og eru í dágóða stund. Þegar þeir koma til baka eru þeir svona ferskir og fínir, búnir að fara í sturtu og fínt!! ;) Já, þetta er nú svona geðveikt en já, ég tók ekki þátt í þessu, er með hálsbólgu svo ég sleppti því. Ekki tók nú Frikki kennari eftir þessu atriði þeirra og settust þeir svo bara aftur inní stofu og héldu áfram að reikna ekki ;) en jújú, það endaði auðvitað með því að maður fór að reikna, enda allir komnir langt á eftir áætlun... :S ;) jájá.

En þá að öðru? Bíóauglýsingin á forsíðunni var uppfærð í dag, Mr. DEEDS með Adam Sandler er næst hér í Laugabíói - fjölmenna á það? ;) uu, já myndir kannski á leiðinni vonandi, og líklega bráðum munu birtast hér nÝjar myndir frá þárna Samdiskóinu á Breiðumýri sem var á föstudaginn síðaztliðinn.... tíminn er takmarkaður og mikið er að læra og svona... æi, maður bara gefur sér ekki tíma í svona hluti skiljiði því miður já nei já....

Já ég held að núna ætli ég að reyna að fara að gera eitthvað gáfulegt en jú, ég hef verið að gera mikið gáfulegt, hef tekið nánazt allt efni sem ég fann + myndir héðan af netinu, sem ég fann af leit.is) ...uuuu.. efni og myndir já um Hávellur en ég er að fara að skrifa ritgerð um þær, þessar blessuðu skepnur (þetta eru sko nashyrningar í kökuformi held ég.... ;) nei nei þetta eru jú fuglar. Og tel ég þetta vera bara ágætist árangur og því ætla ég að hætta þessu rugli í bili og í kveld því netið hér lokar klukkan 8.... :/ (sem er bara kjaftæði finnst mér!) en lítið hægt að gera í því og jájá, veriði þá sæl og takk fyrir lesturinn!

P.S. gestir hafa ekki verið margir uppá síðkastið.... kannski er fólk ekki að fatta að síðan sé lifnuð við aftur eftir dauðann? veit það ekki sko, en amk þá bara ef þið vitið af fólki.... jájá, bara segja fólki frá því sko að við séum risnir aftur.... risarnir risnir... eða ristaður risinn risinn aftur með risann hér við hlið, risarnir risnir, rist, rannveig rist.... bla bla.... (best að hætta áður en sýrustigið hækkar....) bæbæ!! (þvílík rigerð sem ég er búinn að skrifa.... vÁ!)